Ævintýralegt högg Federers fékk Jordan til að hlæja | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. ágúst 2014 10:00 Michael Jordan skemmti sér á Flushing Meadows í gær. vísir/getty
Roger Federer komst án mikilli vandræða í aðra umferð opna bandaríska meistaramótsins í tennis í gær þegar hann vann Ástralann MarinkoMatosevic í þremur settum; 6-3, 6-4 og 7-6 (7-4). Í annarri lotu þegar staðan var 5-3 (30-0) fyrir Federer skoraði hann hjá Matosevic með ævintýralegu höggi á milli fóta sér, en Svisslendingurinn hefur nánast gert þessi högg að listgrein. Ástralinn hélt að hann væri búinn að sigra Federer í stuttri rispu með góðu höggi framhjá honum er þeir börðust upp við netið. Boltinn datt á endalínuna, en þar var Federer mættur og sló boltann til baka á milli fóta sér. Matosevic var búinn að ákveða að stigið væri í höfn og sneri því baki í Federer, en það heppnaðist ekki betur en svo að Ástralinn fékk boltann í afturendann. Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan var á meðal áhorfenda á Flushing Meadows í New York, en Federer frumsýndi nýja skó í gær sem framleiddir eru af fyrirtæki Jordans. Hann gat ekki annað en hlegið þegar hann sá þennan magnaða tenniskappa bjóða upp á annað eins högg á risamóti.
Tennis Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ „Minn stærsti draumur“ Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Uppgjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur aftur á sigurbraut Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Frábær lokakafli dugði ekki til „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Willum hrifinn af norska módelinu Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Conor vill berjast aftur eftir 69 sekúndna bardagann Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ Sjá meira