Vilja taka HM í fótbolta af Rússum Atli Ísleifsson skrifar 23. júlí 2014 14:40 Michael Fuchs og aðrir samflokksmenn Angelu Merkel kanslara segja að ákvörðun um að taka HM í fótbolta af Rússum myndi hafa meiri áhrif á rússnesk stjórnvöld en viðskiptaþvinganir. Vísir/AFP
Þýskir stjórnmálamenn hafa nú margir varpað fram þeirri spurningu hvort rétt sé að taka HM í fótbolta 2018 af Rússum eftir að MH17 vél Malaysia Airlines var skotin niður í austurhluta Úkraínu í síðustu viku. ESB hyggst koma á viðskiptaþvingunum gegn Rússum vegna atburðarins og stuðnings Rússlandsstjórnar og hersins við aðskilnaðarsinna í Úkraínu. Michael Fuchs, þingmaður og samflokksmaður Angelu Merkel Þýskalandskanslara, segir ákvörðun um að taka heimsmeistaramótið af Rússum myndi hafa mun meiri áhrif en viðskiptaþvinganir. „FIFA ætti að huga að því hvernig Rússland geti talist viðeigandi gestgjafi mótsins ef ekki er einu sinni hægt að tryggja öruggar flugleiðir,“ segir Fuchs í samtali við Handelsblatt og bætir við að Þýskaland eða Frakkland gæti tekið að sér að halda mótið. MH17 vél Malaysia Airlines var skotin niður í austurhluta Úkraínu þann 17. júlí á svæði sem aðskilnaðarsinnar á bandi Rússlandsstjórnar ráða yfir. 298 manns fórust í árásinni.
MH17 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira