Íslenski boltinn

Stjarnan valtaði yfir Selfoss

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fyrirliðinn danski, Michael Præst, skoraði þriðja mark Stjörnunnar.
Fyrirliðinn danski, Michael Præst, skoraði þriðja mark Stjörnunnar. Vísir/vallir
Stjörnumenn tóku Selfyssinga á teppið í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í fótbolta í kvöld en Pepsi-deildarliðið vann 1. deildar liðið, 6-0.

Baldvin Sturluson kom Stjörnunni í 1-0 strax á þriðju mínútu og Ólafur Karl Finsen bætti við öðru marki á 15. mínútu. Staðan 2-0 í hálfleik.

Í seinni hálfleik héldu heimamönnum engin bönd en fyrirliðinn Michael Præst skoraði þriðja markið áður en Baldvin og Ólafur Karl skoruðu báðir öðru sinni.

Það var svo AtliFreyr Ottesen sem innsiglaði stórsigur Stjörnunnar, 6-0, á 84. mínútu leiksins.

Stjarnan verður í pottinum þegar dregið verður á föstudaginn en nú eru níu lið komin áfram.

Markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×