Nýtt myndband frá Önnu Hlín Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. apríl 2014 18:15
Söngkonan Anna Hlín hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið Everybody´s saying en hún er búsett í Noregi um þessar mundir og á í nógu að snúast. „Ég bý í Noregi núna og á og rek mitt eigið tónlistarhús, sem samanstendur af þjónustu við tónlistarfólk alls staðar úr heiminum. Við tengjum saman tónlistarfólk við söngvara, lagahöfunda og svo framvegis. Til dæmis ef að tónlistarmaður hefur samband vid okkur og er með lag, sem vantar texta við lagið, fáum við upplýsingar frá honum eftir því hverju hann er að leita eftir og tengjum hann við textahöfund við hæfi, fyrir smá gjald,“ útskýrir Anna Hlín. Hún, ásamt eiginmanni sínum, Anthony Lewis eru líka með þjónustu við ýmis fyrirtæki og semja til að mynda auglýsingastef og byrjunarstef fyrir þætti og útvarpsþætti. Anna Hlín vinnur nú hörðum höndum við gerð plötu og stefnir á að gefa út nýja plötu á næsta ári. Þá er nóg að gera hjá henni í að koma fram í Noregi. „Við ætlum að reyna að koma þessu nýja myndbandi fyrir á MTV Norge sem væri mjög stór stökkpallur,“ bætir Anna Hlín við. Myndbandið er unnið af framleiðslufyrirtækinu Silent. Lagið er eftir þýska pródúsentinn Teka og textinn eftir Brynju Sigurðardóttur. Þá sá eiginmaður Önnu, Anthony Lewis um hljóðblöndun og Sean Chase. Sniteville sá um masteringu lagsins.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Hún er komin til að vera“ Tónlist Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira