Handbolti

Hanna ekki meira með Stjörnunni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hanna G. Stefánsdóttir er úr leik.
Hanna G. Stefánsdóttir er úr leik. Vísir/Valli
Stjarnan hefur orðið fyrir áfalli í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna en reynsluboltinn og landsliðskonan Hanna G.Stefánsdóttir verður ekki meira með á tímabilinu vegna meiðsla.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Stjörnunnar, segir: „Það var brotið illa á henni í deildarleiknum gegn Aftureldingu í næstsíðustu umferð. Hún lenti svo illa á öxlinni og sleit sin.“

Hanna er nú í fatla og má ekki hreyfa olnbogann frá líkanum, að því fram kemur í frétt Morgunblaðsins.

Stjarnan var fyrr í vetur búin að missa Rakel Dögg Bragadóttur úr liðinu sem lagði skóna á hilluna vegna höfuðáverka.

Stjarnan mætir HK í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld. Garðbæingar unnu fyrsta leikinn á heimavelli og komast í undanúrslit með sigri í Digranesi í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×