Körfubolti

Stórt tap hjá Jóni Arnóri og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu stórt á útivelli á móti Cajasol í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jón Arnór var með 7 stig, 3 stoðsendingar og 2 fráköst á þeim tæpu 28 mínútum sem hann spilaði í leiknum. Hann htti þó aðeins úr 3 af 11 skotum sínum.

CAI Zaragoza tapaði fyrsta leikhlutanum 22-3 en tókst að vinna sig aftur inn í leikinn með því að vinna annan og þriðja leikhlutana með samtals tíu stigum. Cajasol gaf hinsvegar aftur í í lokaleikhlutanum og vann sannfærandi sigur.

CAI Zaragoza er í 5. sæti deildarinnar en Cajasol-liðið var þremur sigrum og þremur sætum á eftir Zaragoza fyrir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×