Körfubolti

Auðvelt hjá Jóni Arnóri og félögum

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson átti ágætan leik er lið hans, CAI Zaragoza, valtaði yfir Rio Natura Monbu, 88-58, í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Jón skoraði 7 stig á þeim 24 mínútum sem hann spilaði. Hann tók einnig fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Zaragoza í sjötta sæti og á víst sæti í úrslitakeppninni.

Sömu sögu er ekki að segja af Herði Axel Vilhjálmssyni og félögum hans í Valladolid. Liðið situr sem fastast á botnunum og tapaði í dag, 84-68, gegn Cajasol. Hörður skoraði sex stig í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×