Körfubolti

Laboral vann Hörð Axel og félaga | Lamar Odom ekki með

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sex stig.
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sex stig.
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í CB Valladolid töpuðu enn einum leiknum í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Að þessu sinni töpuðu þeir gegn Laboral Kutxa, 84-67, á útivelli en heimamenn voru 17 stigum yfir í hálfleik, 60-43.

Lamar Odom samdi við Laboral-liðið í síðustu viku og var haldinn mikill blaðamannafundur til að kynna hann fyrir leikinn. NBA-meistarinn fyrrverandi var þó ekki með í kvöld.

Hörður Axel Vilhjálmsson spilaði rétt tæpar 25 mínútur og skoraði sex stig. Hann hitti úr þremur tveggja stiga skotum en brenndi af úr þremur þriggja stiga tilraunum. Við það bætti hann svo tveimur fráköstum.

Valladolid er á botni deildarinnar með aðeins tvo sigra og sautján töp í nítján leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×