Körfubolti

Jón Arnór og félagar unnu mikilvægan sigur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jón Arnór
Jón Arnór Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu mikilvægan sigur á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Jón Arnór setti niður tvö stig á þrettán mínútum í leiknum.

Valencia hefur verið nánast óstöðvandi í spænsku deildinni undanfarnar vikur og aðeins tapað einum leik af síðustu átján fyrir leik dagsins. Það voru hinsvegar heimamenn í  Zaragoza sem fóru með sigurinn af hólmi. Zaragoza náði átta stiga forskoti í fyrsta leikhluta og hélt forskotinu út leikinn.

Valencia vann fyrri leik liðanna á tímabilinu örugglega 96-76 en Zaragoza sló út Valencia í úrslitakeppni spænsku deildarinnar á síðasta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×