Fótbolti

Real Madrid gefur ekkert eftir í toppbaráttunni

Benzema skorar mark sitt í dag.
Benzema skorar mark sitt í dag. vísir/afp
Real Madrid komst aftur upp að hlið Barcelona og Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Liðið vann þá öruggan 3-0 útisigur á Getafe.

Cristiano Ronaldo er enn í leikbanni hjá Real en það kom ekki að sök. Jese Rodriguez skoraði í fimmta leiknum í röð og Karim Benzema bætti við öðru marki fyrir hlé.

Það var svo Króatinn Luka Modric sem kláraði leikinn í síðari hálfleik.

Real, Atletico og Barcelona eru öll með 60 stig á toppi deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×