Körfubolti

Hlynur hirti átján fráköst

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hlynur Bæringsson í leik með Sundsvall Dragons.
Hlynur Bæringsson í leik með Sundsvall Dragons. Vísir/Getty
Íslendingarnir þrír spiluðu allir með Sundsvall Dragons sem vann sigur á Nässjö, 88-78, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Nässjö er í neðsta sæti deildarinnar en liðið hefur aðeins unnið fimm af 29 leikjum sínum á tímabilinu. Drekarnir sigu þó ekki almennilega fram úr fyrr en í þriðja leikhluta er liðið skoraði 30 stig gegn tíu.

Jakob Sigurðarson skoraði sextán stig fyrir Sundsvall, Hlynur Bæringsson tólf og Ægir Þór Steinarsson sjö. Hlynur tók þar að auki átján fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Sundsvall er í fjórða sæti deildairnnar með 32 stig, 20 stigum á eftir toppliði Södertälje.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×