Ligety varði forskotið og fékk gull | Myndband 19. febrúar 2014 11:40
Bandaríkjamaðurinn Ted Ligety vann sitt annað Ólympíugull á ferlinum í dag þegar hann náði bestum samanlögðum tíma í stórsvigi í Sotsjí. Ligety náði langbestum tíma allra keppanda í fyrri ferðinni í morgun og mátti því slaka aðeins á í seinni ferðinni sem kláraðist nú rétt í þessu. Samanlagður tími hans var 2:45,29 mínútur. Hann slakaði kannski fullmikið á í þeirri síðari og hugsaði meira um að verja forskot sitt en sækja af krafti niður brekkuna. Hann náði aðeins 14. besta tímanum af þeim 30 bestu í seinni ferðinni en það dugði til sigurs. Þetta er annað Ólympíugull Bandaríkjamannsins á ferlinum en hann vann alpatvíkeppnina í Tórínó fyrir fjórum árum. Hann er aftur á móti ríkjandi heimsmeistari í stórsvigi, risasvigi og alpatvíkeppni. Frakkar fengu bæði silfur og brons. Steve Missillier kom annar í mark á 2:45,77 mínútum og vann sín fyrstu verðlaun á Ólympíuleikum 29 ára gamall. Alexis Pinturault náði þriðja besta samanlögðum tíma, 2:45,93 mínútur.Ted Ligety sér að hann er á besta tímanum.Vísir/GettyVísir/Getty
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Tengdar fréttir Bein útsending frá ÓL 2014 | Dagur 12 Vísir er með beina útsendingu frá keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi en tólfti keppnisdagur leikanna er í dag. 19. febrúar 2014 06:30 Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Fleiri fréttir Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Biður Dag afsökunar Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Eir bætti eigið Íslandsmet Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Alcaraz yngstur til að klára alslemmuna í tennisnum Sigvaldi kemur inn fyrir Teit Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Allir trúa á brons í Herning Hjartað og andinn muni skila sigri Valieva sneri aftur á ísinn eftir fjögurra ára bann Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Gísli valinn í úrvalslið EM „Held og vona að Ísland taki bronsið“ Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn Hárkollan fauk af í miðjum bardaga Sigvaldi skráður til leiks Sjá meira
Bein útsending frá ÓL 2014 | Dagur 12 Vísir er með beina útsendingu frá keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi en tólfti keppnisdagur leikanna er í dag. 19. febrúar 2014 06:30