Pyntaður mótmælandi eftirlýstur Samúel Karl Ólason skrifar 31. janúar 2014 20:55 Stjórnarandstöðuleiðtoginn Vitali Klitschko ræðir hér við Dmytro Bulatov. Vísir/AP Images
Mótmælandinn Dmytro Bulatov sem fannst illa útleikinn í útjaðri Kænugarðs í gær og segist hafa verið haldið í átta daga og pyntaður, er kominn á lista eftirlýstra í Úkraínu. Mótmælendur standa nú vörð um sjúkrahúsið sem hann er á og hleypa lögreglunni ekki inn. Fyrr í dag ætlaði lögreglan að handtaka Bulatov en starfsmenn sjúkrahússins leyfðu þeim ekki að taka hann af sjúkrahúsinu. Mótmælendur segja lögregluna ætla að handtaka Bulatov, en lögreglan segir aftur á móti eingöngu ætla að ræða við hann vegna rannsóknar á meintum pyntingum. Embættismaður í innanríkisráðuneyti Úkraínu sagði BBC að grunur léki á að mannránið og pyntingin væri sviðsett og liður í að auka óróleika í landinu.Mótmælendur standa vörð um sjúkrahúsið.Vísir/AP ImagesFréttaritari BBC segir Bulatov vera einn af mörgum mótmælendum sem hafa horfið og að minnsta kosti einn þeirra hafi fundist látinn. Einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar, Vitali Klitschko, segir að um 15 lögreglumenn hafi komið á sjúkrahúsið með dómsúrskurð og ætlað að handtaka Bulatov. Hann sagði einnig að lögreglumennirnir hefðu ekki leyft honum að sjá úrskurðinn. Annar leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Arseniy Yatsenyuk, segir að ófarir Bulatov séu sönnun þess að dauðasveitir séu nú að störfum í Úkraínu.
Úkraína Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Fleiri fréttir Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Sjá meira