Körfubolti

Jón Arnór með fimmtán stig á átján mínútum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Vísir/Anton
Jón Arnór Stefánsson lék vel með spænska liðinu CAI Zaragoza í kvöld þegar liðið tapaði með tólf stigum á móti litháenska liðinu Lietuvos Rytas Vilnius, 75-87, í Eurocup-bikarnum.

Jón Arnór er að koma til baka eftir meiðsli en sýndi í kvöld að hann er að komast aftur í sitt besta form. Hann var reyndar í villuvandræðum en nýtti sínar mínútur vel, skoraði fimmtán stig á átján mínútum.

Jón Arnór var annar stigahæsti leikmaður síns liðs og CAI Zaragoza vann þær rúmu átján mínútum sem hann spilaði með þremur stigum.

Jón Arnór hitti úr 5 af 8 skotum sínum utan af velli og setti niður öll fjögur vítin sín. Hann var líka með 2 fráköst, 1 stoðsendingu og 1 stolinn bolta.

CAI Zaragoza hefur tapað 3 af 4 fyrstu leikjum sínum í milliriðli keppninnar en liðið vann Lietuvos Rytas Vilnius 94-60 á heimavelli í síðasta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×