Sævar æfir í tveggja km hæð til að undirbúa sig fyrir ÓL Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2014 22:30 Sævar Birgisson. Mynd/sbirgisson.com
Skíðagöngumaðurinn Sævar Birgisson verður fyrstur íslenskra íþróttamanna til þessa að keppa á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí en lokaundirbúningur hans fyrir leikana fer fram á Ítalíu. Sævar Birgisson er við æfingar í Seiser Alm á Ítalíu en skíðasvæðið í Seiser Alm er staðsett í 1800 til 2000 metra hæð yfir sjávarmáli. Sævar er þar í svokallaðri hæðaraðlögun. Í frétt á heimasíðu Skíðasambands Íslands segir Sævar að aðstæður séu eins og best sé á kosið, en það er um 5-10° frost og sól alla daga. Sævar að fara um 30 kílómetra á hverri æfingu en hann segist æfa mjög rólega til þess að venjast hæðinni. Inni á milli æfir hann þó hraðar enda að fara að keppa í sprettgöngu í Sotsjí. Sævar segir að það gangi gríðarlega vel að æfa og vonast hann til þess að toppa á ólympíuleikunum í Sotsjí. Sævar mun vera áfram við æfingar í Seiser Alm fram að helgi en þá mun hann færa sig yfir til Toblach sem einnig er á Ítalíu og hann keppir síðan á heimsbikarmóti þar. Sævar keppir í sprettgöngu og 15 kílómetra göngu í Sotsjí. Sprettgangan fer fram 11.febrúar og 15 kílómetra gangan verður svo 14.febrúar.
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti Sport Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Fótbolti Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Fótbolti Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Golf „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Sport Mest lesið í sportinu: Hlaupadrottningar, strákarnir okkar og hneyksli á ÓL Sport Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Fótbolti Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Fótbolti Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Fleiri fréttir Ráku annan þjálfarann á tímabilinu „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Samspil Elvars og Tryggva meðal tilþrifa ársins Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Elín og Ómar valin handknattleiksfólk ársins Mest lesið í sportinu: Hlaupadrottningar, strákarnir okkar og hneyksli á ÓL Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar, HM í pílu og amerískar íþróttir Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti Heimsmeistararnir þrír fóru allir áfram Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Töp hjá Íslendingaliðunum í Þýskalandi Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Melsungen enn á toppnum eftir sigur í Íslendingaslag Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Tapaði níu leggjum í röð eftir níu pílna leik og var sendur heim Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Riley búinn að fá nóg og þvertekur fyrir að Miami muni skipta Butler Komnir með upp í kok: „Seldu liðið“ Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ Þakið ætlaði að rifna af Ally Pally eftir níu pílna leik Heta Sjá meira