Njarðvíkingar unnu 49 stiga sigur í fyrsta leik Tracy Smith Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2014 20:46 Tracy Smith yngri . Mynd/NordicPhotos/Getty
Tracy Smith yngri byrjar vel í Ljónagryfjunni en hann var með 29 stig og 15 fráköst á 32 mínútum í 49 stiga sigri Njarðvíkur á KFÍ, 113-64, í Njarðvík í kvöld í tólftu umferð Dominos-deildar karla í körfubolta. Njarðvíkingar áttu ekki í miklum vandræðum með Ísafirðinga í þessum leik og það er ljóst að leikurinn var ekki alvörupróf fyrir umræddan Tracy Smith sem var fenginn til Njarðvíkur til þess að styrkja liðið undir körfunni. Tracy Smith opnaði greinilega fyrir aðra í Njarðvíkurliðinu því fjórir leikmenn liðsins skoruðu þrettán stig eða meira. Logi Gunnarsson skoraði 19 stig, Elvar Már Friðriksson var með 17 stig og 9 stoðsendingar og Ágúst Orrason skoraði 16 stig. Njarðvíkingar tóku öll völd í byrjun leiks, komust í 14-2, 23-7 og voru með 17 stiga forskot eftir fyrsta leikhlutann, 28-11. Njarðvíkingar gáfu ekkert í öðrum leikhlutanum sem skilaði þeim 35 stiga forskoti í hálfleik, 61-26. Fjórir leikmenn Njarðvíkurliðsins voru komnir með tíu stig eða meira eftir fyrri hálfleikinn og nýi miðherjinn, Tracy Smith yngri var með 16 stig og 8 fráköst í hálfleiknum. KFÍ skoraði 8 af fyrstu 10 stigum seinni hálfleiks en það dugði skammt og munurinn var enn 30 stig, 79-49, við lok þriðja hlutans. Njarðvíkingar áttu því ekki í miklum vandræðum með að landa fyrsta sigri sínum á nýju ári.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira