Snæfellskonur á svaka siglingu í kvennakörfunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 20:34 Snæfellskonur eru að spila vel þessa dagana. Mynd/Valli
Snæfellsliðið er á svaka siglingu í Domnios-deild kvenna í körfubolta en liðið fór í Ljónagryfjuna í kvöld og vann 35 stiga sigur á heimastúlkum í Njarðvík, 94-59. Þetta er sjötti deildarsigur Snæfells í röð og alla hefur liðið unnið með þrettán stigum eða meira. Snæfellsliðið tók völdin strax í byrjun og 25-8 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Snæfell var síðan 25 stigum yfir í hálfleik, 48-23, og vann þriðja leikhlutann 27-13. Njarðvíkurkonur eru á botni deildarinnar en komu á óvart með því að vinna KR á útivelli í síðustu umferð og höfðu unnið tvo af þremur fyrstu leikjum sínum undir stjórn Agnars Gunnarssonar. Í kvöld áttu hið unga Njarðvíkurliðið enga möguleika.Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði Snæfellsliðsins, hefur verið frábær í sigurgöngunni og hún gældi við þrennuna í kvöld. Hildur endaði leikinn með 10 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar. Í aðalhlutverkum voru líka þær Chynna Brown (27 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar), Hildur Björg Kjartansdóttir (15 stig), Hugrún Valdimarsdóttir (14 stig) og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir (12 stig). Nikitta Gartrell skoraði mest fyrir Njarðvík eða 15 stig. Snæfell hafði á undan unnið Hamar (+13), Val (+23), Grindavík (+14), Keflavík (+26) og Hauka (+13) og vantar nú aðeins sigur á KR í næsta leik til þess að vinna öll lið deildarinnar í einum rykk.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira