Körfubolti

Jón Arnór missti af sjötta leiknum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Daníel
Jón Arnór Stefánsson gat ekki spilað með CAI Zaragoza í kvöld þegar liðið tapaði með sjö stigum á heimavelli á móti Real Madrid, 68-75, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Jón Arnór er enn að ná sér að meiðslum og var sárt saknað í spennuleik.

Real Madrid var tveimur stigum yfir í hálfleik, 38-36, en staðan var jöfn fyrir lokaleikhlutann, 54-54. Real vann lokaleikhlutann 21-14 og tryggði sér sigurinn.

Damjan Rudez og Giorgi Shermadini voru stigahæstir hjá CAI Zaragoza liðinu með 17 stig og Viktor Sanikidze skoraði 12 stig en þetta eru allt framherjar eða miðherjar. Rudy Fernández var stigahæstur hjá Real Madrid með 21 stig.

Jón Arnór Stefánsson fór í aðgerð á hné um miðjan desember og hefur misst af síðustu sex leikjum liðsins. CAI Zaragoza hefur unnið þrjá af þessum sex leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×