Saksóknari vill fá upptöku af skíðaslysi Schumacher Elimar Hauksson skrifar 5. janúar 2014 16:00 Rolf Schumacher, bróðir Michaels, mætir á Grenoble spítalann í Frakklandi þar sem Michael liggur í dái. mynd/afp
Héraðssaksóknari í Frakklandi hefur farið þess á leit að fá afhenta upptöku af skíðaslysi ökumaþórsins Michael Schumacher. Schumacher féll af skíðum í frönsku Ölpunum fyrir rúmri viku og hefur verið í lífshættu síðan. AP greinir frá. Margar spurningar hafa vaknað um það hvernig slysið bar að en Schumacher rak höfuð sitt á stein, með þeim afleiðingum að hjálmurinn sem hann var með brotnaði. Umboðsmaður Schumacher, Sabine Kehm, tilkynnti í gær að fjölskylda Schumacher hafi afhent frönskum yfirvöldum Go pro myndavél sem var áföst við hjálminn sem Schumacher var með á sér. Saksóknari á svæðinu, Patrick Quincy sagði í samtali við fréttaveitu AP að yfirvöld væru einnig að reyna að koma höndum á upptöku úr snjallsíma eftir þýska blaðið Der Spiegel sagði frá því að vitni hefði sett sig í samband við blaðið og lýst því svo að hann hefði undir höndum upptöku af slysinu. Segir vitnið að Schumacher hafi ekki verið á meiri hraða en 20 kílómetrum á klukkustund þegar slysið varð. Michael Schumacher er sigursælasti ökumaður Formúlu 1 kappakstursins frá upphafi, með 91 sigur í keppni. Hann hætti í Formúlu 1 árið 2012 eftir að hafa unnið sjö heimsmeistaratitla.
Skíðaslys Michael Schumacher Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira