Körfubolti

Helena heldur áfram að raða niður þristum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Daníel
Helena Sverrisdóttir byrjaði nýja árið eins og hún endaði það gamla þegar hún skoraði fjórar þriggja stiga körfur í tólf stiga sigri DVTK Miskolc á UNIQA Euroleasing Sopron í Mið-Evrópu deildinni í körfubolta. Miskolc vann leikinn 76-64.

Helena skoraði sextán stig í leiknum en hún hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Helena var næststigahæst í sínum liði á eftir Liene Jansone sem skoraði tveimur stigum meira.

Helena var frákastahæst í liði Miskolc en hún tók átta fráköst og var síðan með tvær stoðsendingar og tvo stolna bolta á þeim 32 mínútum sem hún spilaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×