Fótbolti

Mættu ofjörlum á Maksimir

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Hollenski dómarinn Björn Kuipers flautar hér til leiksloka við mikinn fögnuð leikmanna króatíska landsliðsins.
Hollenski dómarinn Björn Kuipers flautar hér til leiksloka við mikinn fögnuð leikmanna króatíska landsliðsins. Mynd/Vilhelm
Þrátt fyrir að karlalandsliði Íslands væri rétt vegleg líflína í Zagreb í gær átti liðið aldrei möguleika. Frá fyrstu mínútu voru okkar menn sem lömb í höndum Króata og trúin á verkefnið virtist minnka eftir því sem á leið.

Í 38 mínútur sóttu Króatar á okkar menn sem sátu aftarlega á vellinum, ráðvilltir en vörðust þó hetjulega. Eftir enn eina hornspyrnu heimamanna á 27. mínútu var Mario Mandzukic dauðafrír á fjærstöng og skoraði auðveldlega. Staðan var sanngjörn og Íslendingar á Maksimir-leikvanginum og víðar farnir að vonast eftir því að liðinu tækist að lifa af marki undir til hálfleiks.

Skyndilega birti til. Mandzukic sá rautt á 38. mínútu og allt í einu var von. Reyndar miklu meira en það. Hann var orðinn risastór.

Eftir fimmtán mínútna ráðagerð í leikhléi byrjaði síðari hálfleikur á versta mögulega hátt. Dario Srna skoraði og allt ætlaði um koll að keyra í Zagreb. Allt í einu þurftu strákarnir tvö mörk og í sannleika sagt voru Króatarnir líklegri til að bæta við marki, manni færri, en við að minnka muninn.

Vonbrigðin í leikslok voru mikil enda ljóst hve nálægt við vorum farseðlinum til Brasilíu. Jafnljóst var að við þyrftum á afburðaframmistöðu að halda gegn Króötum sem kunnu betur að meðhöndla spennuþrungnar aðstæður þar sem svo mikið var í húfi. Lykilmenn voru fjarri sínu besta, liðið saknaði Kolbeins Sigþórssonar sárlega og í raun vorum við heppnir að ekki fór verr. Þegar á hólminn var komið voru okkar menn ekki klárir.

Nánast enginn leikmaður Íslands hafði spilað jafnmikilvægan leik á ferlinum en nú er slíkur leikur kominn í reynslubankann. Þótt frammistaðan í gærkvöldi væri léleg hefur leikur Íslands í keppninni verið til fyrirmyndar. Handan við hornið er Evrópumótið í Frakklandi 2016 og ljóst að þangað eiga okkar menn, reynslunni ríkari, góðan möguleika á að komast.

Þótt Brasilíuævintýrið sé úti er ævintýri karlalandsliðsins rétt að byrja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×