Pavel ekki einn í þrennuklúbbnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 08:00 Pavel Ermolinskij
Þrennuklúbbur Dominos-deildar karla í körfubolta er alíslenskur eftir leiki fimmtudagskvöldsins en þá tryggði þriðji íslenski leikmaðurinn sér aðild að klúbbnum. Þrenna telst það þegar körfuboltamaður kemst yfir tíu í þremur tölfræðiþáttum sem eru vanalega stig, fráköst og stoðsendingar þótt sumir nái því einnig stundum í stolnum boltum og vörðum skotum. Matthías Orri Sigurðarson, yngri bróðir landsliðsmannsins Jakobs Arnar hjá Sundsvall, fór á kostum í sigri ÍR-liðsins á Val og bættist þá í hóp með Pavel Ermolinskij hjá KR og Emil Barja hjá Haukum. Matthías var með 22 stig, 13 fráköst og 12 stoðsendingar í leiknum á móti Val en þessi 19 ára leikstjórnandi tapaði aðeins einum bolta á 37 mínútum. Hann var í rauninni með fernu því hann fiskaði einnig tíu villur á Valsmenn í þessum mikilvæga leik. Það var magnað að sjá strákinn taka hvert frákastið á fætur öðru inn á milli stóru leikmanna liðanna. Pavel Ermolinskij varð fyrsti meðlimur í þrennuklúbbi tímabilsins og kom það fáum á óvart. Pavel var nefnilega að ná sinni tólftu þrennu á Íslandsmótinu. Snæfellingar réðu ekkert við kappann sem var með 20 stig, 22 fráköst og 13 stoðsendingar í sigurleik í Hólminum. Emil Barja bættist í hópinn í sigri Hauka á Snæfelli en hann var með 21 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar í þeim leik. Emil hefur verið í nágrenni við þrennuna í nær öllum leikjum og meðaltölin hans í fyrstu fimm leikjunum eru 9,6 stig, 9,0 fráköst og 8,2 stoðsendingar. Hvort fleiri bætist í hópinn á næstunni verður síðan að koma í ljós.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira