Íslenski boltinn

Ná Frakkar að stoppa sigurgöngu strákana

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Atlason.
Emil Atlason. Mynd/Daníel
Íslenska 21 árs landsliðið fer í stóra prófið klukkan 18.30 í kvöld þegar liðið tekur á móti Frökkum á Laugardalsvellinum í undankeppni HM.

Íslenska liðið hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í undan-keppninni með markatölunni 10-3 en Frakkar eru líka með fullt hús eftir sína þrjá leiki. Það reynir því á Eyjólf Sverrisson og strákana hans.

Frakkar reyna örugglega allt til að stoppa Emil Atlason, framherja íslenska liðsins, sem hefur skorað sjö mörk í fyrstu fjórum leikjunum en Emil er með að minnsta kosti eitt mark í öllum sigrinum fjórum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×