Fótbolti

Enn í okkar höndum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér seinna marki Íslands í sigrinum á Kýpur í gær.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér seinna marki Íslands í sigrinum á Kýpur í gær. Mynd/Vilhelm
Karlalandslið Íslands hefur örlög sín í eigin höndum eftir frammistöðu gegn Kýpverjum sem full ástæða er til að kenna við fagmennsku. Þjálfararnir, Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, höfðu predikað að menn mættu ekki fara á taugum. Viðbúið væri að okkar menn myndu hafa yfirburði, sækja linnulítið en það væri ekki ávísun á mark.

Þeir félagar mega vel kenna sig við Nostradamus enda spilaðist leikurinn í gær nákvæmlega á þann hátt. Íslensku strákarnir sköpuðu sér fín skotfæri en tókst aldrei að toga almennilega í gikkinn. Fyrir vikið gátu leikmenn Kýpur andað léttar þegar gengið var til búningsherbergja. Einn þeirra virtist meira upptekinn af því að biðja Eið Smára Guðjohnsen um að skipta við sig um treyju á hlaupabrautinni.

Eflaust greip um sig einhver örvænting hjá stuðningsmönnum Íslands framan af síðari hálfleik. Takturinn úr fyrri hálfleik virtist týndur en hann fannst fljótlega og í kjölfarið kom markið. Það var við hæfi að Kolbeinn Sigþórsson batt enda á markaleysið. Framherjinn hafði skoraði lykilmark í þremur síðustu leikjum og enn gerði hann gæfumuninn. Tólf mörk í átján landsleikjum er markahlutfall sem enginn af stærstu framherjum álfunnar getur státað af.

Aldrei kom til þess að áhorfendur tækju andköf í Laugardalnum af ótta við jöfnunarmark. Stundarfjórðungi síðar skoraði Gylfi Þór Sigurðsson eftir stórsókn og sigurinn var í höfn.

Strákarnir okkar hafa spilað betur en í gærkvöldi en sjaldan verið jafnþéttir. Leiknir Kýpverjar sköpuðu sér ekki færi í níutíu mínútur og hefur bleik markmannstreyja Hannesar Þórs Halldórssonar líklega verið óvenjuhrein í leikslok. Með sigrinum eru okkar menn í bílstjórasætinu um annað sæti riðilsins.

Sigur í Noregi á þriðjudag tryggir umspilsleiki í nóvember og það gæti jafntefli og jafnvel tap gert líka. Okkar strákar munu þó vafalítið spila til sigurs í Ósló enda með miklu betra lið en Norðmenn sem munu þó vafalítið selja sig dýrt gegn litla frænda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×