Geðveik listakona og þunglyndur metalhaus Sara McMahon skrifar 9. október 2013 22:00 Málmhaus er frumsýnd á föstudag.
MálmhausHera Karlsdóttir missir bróður sinn af slysförum og kennir sjálfri sér um dauða hans. Hún á erfitt með að takast á við sorgina en finnur sáluhjálp í þungarokkstónlist og dreymir um að verða rokkstjarna sjálf. Leikstjóri myndarinnar er Ragnar Bragason og með aðalhlutverk fer hin efnilega Þorbjörg Helga Dýrfjörð, auk Ingvars E. Sigurðssonar, Halldóru Geirharðsdóttur, Jörunds Ragnarssonar og Hannesar Óla Ágústssonar. Valdís Óskarsdóttir klippti myndina og tónlistarmaðurinn Pétur Ben sá um tónlistina.Camille Claudel 1915 Myndin segir frá listakonunni Camille Claudel sem er lokuð inni á hæli í útjaðri Avignon. Claudel reynir að sannfæra alla þar um að hún sé í raun heilbrigð og heldur fast í vonina um að losna þaðan burt. Með aðalhlutverk myndarinnar fer Juliette Binoche. Leikstjóri myndarinnar er Bruno Dumont.La vie d‘AdeleGræna ljósið frumsýnir frönsku kvikmyndina La vie d‘Adele sem fjallar um ástarsamband tveggja ungra kvenna. Myndin er byggð á franskri myndasögu eftir Julie Maroh. Myndin hlaut aðalverðlaunin á Cannes-kvikmyndahátíðinni í vor og naut mikilla vinsælda er hún var sýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF nú fyrir stuttu.
Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Fleiri fréttir Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira