Þungarokksfræði í háskólanum 14. maí 2013 20:00 Metallica. Höfundur námsleiðarinnar þvertekur fyrir að þungarokksnámið sé léttvægt.
Háskólinn New College Nottingham í Englandi mun frá og með haustinu bjóða upp á kennslu í þungarokksfræðum. Námið tekur tvö ár og er hægt að nýta sem hluta af BA-gráðu frá skólanum, en talið er að námið sé það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Tilvonandi nemar í þungarokksfræðum við skólann munu meðal annars læra að semja og spila þungarokkslög og einnig fræðast um sögu þungarokksins, lykilfólk innan stefnunnar og tónlistarbransann eins og hann snýr að þungarokki. Liam Maloy, sem eyddi sjö mánuðum í að undirbúa námsleiðina, þvertekur fyrir að um léttvægt nám sé að ræða, en nokkuð hefur borið á gagnrýni þess eðlis ytra eftir að fréttir af náminu spurðust út. „Námið er hluti af gráðu, svo það verður strangt,“ segir Maloy í viðtali við BBC. „Þungarokk hefur sjaldan verið tekið alvarlega og er oft talið skorta fræðilegan trúverðugleika þegar það er borið saman við aðrar tónlistarstefnur eins og djass og sígilda tónlist. En það er bara menningarleg túlkun.“
Tónlist Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Laufey á lista Obama Lífið Fleiri fréttir Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira