Körfubolti

Riðillinn klár hjá liði Helenu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir er komin í úrslitakeppni Euroleague fyrst íslenskra körfuboltakvenna.
Helena Sverrisdóttir er komin í úrslitakeppni Euroleague fyrst íslenskra körfuboltakvenna. Mynd/Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska félaginu Good Angels Kosice komust eins og kunnugt er í átta liða úrslitakeppni Euroleague á dögunum og nú er ljóst hvaða lið verða í riðli með Góðu englunum á úrslitahelginni.

Good Angels Kosice er í riðli með gestgjöfum Ekaterinburg frá Rússlandi, Galatasaray frá Tyrklandi og Polkowice frá Póllandi. Good Angels Kosice vann sinn riðil og sló síðan út Perfumerias Avenida frá Spáni. Helena er komin í úrslitakeppni Euroleague fyrst íslenskra körfuboltakvenna.

Leikir í riðlinum fara fram frá 18. til 20. mars og tvö efstu liðin komast í undan-úrslitin sem verða spiluð 22. mars. Úrslita-leikurinn fer síðan fram 24. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×