Draumaleikmaður og töffari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2013 07:00 32,9 stig og 7,4 stoðsendingar í leik Damier Pitts hefur spilað frábærlega með KFÍ-liðinu í vetur. Hér er hann í leik á móti Snæfelli. mynd/Halldór Sveinbjörnsson
Pétur Már Sigurðsson, þjálfari KFÍ í Dominos-deild karla í körfubolta, vann í kanahappadrættinu í nóvember þegar hann samdi við Damier Pitts. Damier er búinn að brjóta 30 stiga múrinn í níu leikjum KFÍ í röð. Þegar menn líta yfir tölfræðina hjá KFÍ-manninum Damier Pitts velta örugglega margir fyrir sér hvernig Ísfirðingum tókst að krækja í þennan frábæra körfuboltamann. Damier Pitts er 23 ára gamall og á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku eftir að hafa spilað með Marshall-háskólanum í bandaríska háskólaboltanum fjögur ár þar á undan. Pitts er nú stigahæstur í deildinni og í 3. sæti í stoðsendingum. Hann er allt í öllu í leik KFÍ-liðsins og það er margt í gangi inni á vellinum sem fer ekki í gegnum hann. KFÍ tapaði fyrstu fimm leikjunum með hann innanborðs en hefur nú unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum og annað tapanna kom á dramatískan hátt í framlengingu. „Hann minnir svolítið á mig þegar ég var að spila," sagði Pétur Már Sigurðsson í léttum tón þegar undirritaður spurði hann út í Damier Pitts, bandarískan leikstjórnanda liðsins sem hefur farið á kostum með KFÍ síðan að hann kom til Ísafjarðar í nóvember.Draumaleikmaður í þessa stöðu Pétur Már getur samt ekki frekar en aðrir á Ísafirði leynt aðdáun sinni á þessum frábæra leikmanni sem hefur skorað yfir 30 stig í níu leikjum í röð. „Hann er rosalega góður. Það er góð ára í kringum hann og hann er mikill leiðtogi innan sem utan vallar. Þetta er klárlega algjör draumaleikmaður í þessa stöðu," segir Pétur Már. Pitts hefur góða afsökun fyrir því að skora ekki 30 stig í fyrsta leiknum. „Hann skoraði reyndar bara 17 stig í fyrsta leiknum sínum en þá lenti hann bara um morguninn," sagði Pétur en síðan þá hefur kappinn skorað minnst 30 stig í leik og þá gaf hann líka 11 stoðsendingar í sigurleik á móti Skallagrími. En hvernig verða menn svona heppnir í kanahappadrættinu? „Ég er með góð sambönd. Hann spennti bogann mjög hátt og það gekk ekki upp. Við létum erlenda leikmanninn okkar fara í byrjun nóvember og þá var hann á lausu. Ég var þá að skoða nokkra leikmenn en leyst mjög vel á hann því hann var einmitt týpan sem ég var að leita að," sagði Pétur Már sem er samt alveg tilbúinn að taka ábyrgð á slæmri byrjun í vetur.Gerði fyrst mistök „Ég sem þjálfari gerði mistök í útlendingavali og þurfti að súpa seyðið af því. Þá komst þetta seint og illa af stað en það virðist vera mikill stígandi í liðinu og menn eru jákvæðir yfir öllu sem er að gerast núna. Við erum mjög grimmir að komast í úrslitakeppnina og það er það eina sem kemst núna að hjá okkur," segir Pétur og Pitts á mikinn þátt í því. „Ég veit ekki hvort það komi honum á óvart að hann small inn í leikkerfið hjá mér. Við erum að hlaupa eitthvað sem hentar honum vel og ég leyfi honum að hafa ákveðið frjálsræði. Hann finnur líka leikmennina í kringum sig og stjórnar leiknum vel. Við erum í góðu sambandi og þetta er eðaldrengur," segir Pétur Már sem sparar ekki hrósið á sinn mann. „Hann er algjör töffari og það skín af honum sjálfstraustið. Það hefur áhrif enda er hann mikill sigurvegari. Á æfingum verður mönnum oft heitt í hamsi því menn eru grimmir í að vinna leiki á æfingum. Það hefur komið með hans tilvist í liðinu," segir Pétur Már. „Hann er ótrúlega jákvæður og alltaf tilbúinn að koma að dæma eða hjálpa til. Hann er orkubolti sem er eiginlega alltaf brosandi. Þetta er alveg eðalsending," segir Pétur Már að lokum. Bara búinn að sjá sólina tvisvar sinnumDamier Pitts viðurkennir það að það hafi verið klúður hjá umboðsmanni sínum sem varð til þess að hann endaði á Ísafirði en hann sé jafnframt staðráðinn í að gera það besta úr þessari stöðu. „Það er mjög gott og afslappað að vera hér á Ísafirði. Ég er frá stórri borg í Bandaríkjunum þannig að það er mjög öðruvísi fyrir mig að búa í svona litlum bæ,“ segir Damier Pitts. „Mér líður vel á Ísó, það eru allir almennilegir og ég nýt lífsins hérna. Ég er búinn að vera að spila vel og hugsa bara um að gefa allt mitt í hvern einasta leik og gera það sem ég þarf að gera fyrir liðið. Markmið okkar er að komast upp í sjöunda eða áttunda sætið og við ætlum að gera allt sem við getum til þess að komast í úrslitakeppnina,“ segir Damier. „Myrkrið er svo sem ekkert að angra mig en ég hef líklega bara séð sólina tvisvar sinnum síðan ég kom til Ísafjarðar. Það er skrýtið en ég fæ að sjá sólina þegar ég kem til Reykjavíkur. Við keyrum líka í alla leiki og fljúgum aldrei. Þetta eru hátt í sex tíma ferðir og það er mikil breyting fyrir mig.“
Dominos-deild karla Mest lesið Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Handbolti Trump gæti bannað Brasilíumönnum að mæta á HM í fótbolta Fótbolti Þurfa að sanna að þær séu konur áður en þær fá að keppa á HM Sport Í beinni: KA - Silkeborg | Langþráður Evrópuleikur á Akureyri Fótbolti McGregor tapaði áfrýjun og þarf að borga konunni sem hann nauðgaði Sport Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Körfubolti Breyttir tímar hjá Man. United: Höjlund skoraði í stórsigri Enski boltinn Eigendur Liverpool eyða meira í Isak en í að kaupa fótboltafélag í Madrid Enski boltinn Brady í Birmingham þáttum: Efaðist strax um Rooney og kallaði leikmennina lata Enski boltinn Of falleg saga til að vera ekki skrifuð í skýin Golf Fleiri fréttir Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Kristófer sendir frá sér yfirlýsingu: „Ekki ætlun mín að valda usla“ Kristófer opnar sig um ágreininginn: „Vonbrigði og vanvirðing“ Shaq lofar að mæta í kjól ef Gobert verður valinn Mynd af yngstu dóttur Kobe Bryant vekur lukku Mættur aftur tuttugu árum seinna Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Stólarnir styrkja íslenska kjarnann með Geks Mario og Jaka í æfingahópnum fyrir EM Ásakaði LeBron um steranotkun í gríni Þreyttur á fallbaráttu og furðulegum ákvörðunum Sutton snýr aftur á Krókinn Svona er riðill Íslands í undankeppni EM Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik Frá Skagafirði á Akranes Paul ætlar að klára ferilinn hjá Clippers Sjá meira