Stofnuðu Félag íslenskra kvenna í tónlist 10. janúar 2013 17:30 Védís Hervör, Ragnheiður Gröndal, Greta Salóme og Lára Rúnars eru í bráðabirgðastjórn félagsins.
Stofnfundur Félags íslenskra kvenna í tónlist var haldinn á mánudagskvöld. Fimmtíu konur mættu á fundinn. Í bráðabirgðastjórn eru Védís Hervör Árnadóttir, Ragnheiður Gröndal, Greta Salóme Stefánsdóttir og Lára Rúnarsdóttir. Fundurinn var haldinn í Hannesarholti við Grundarstíg, sem er nýr tónleikastaður fyrir um sjötíu áhorfendur. Aðalfundur verður haldinn í lok janúar. Þar verður kjörinn formaður og endanleg stjórn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins varð félagið til í spjalli á Facebook fyrir jól. Stofnaður var Facebook-hópur og á örskömmum tíma er hann orðinn mjög fjölmennur og telur núna tæplega fimm hundruð konur. Tilgangur félagsins er að skapa jákvæða umræðu, samstöðu og samstarfsvettvang meðal tónlistarkvenna sem eiga það sameiginlegt að starfa á Íslandi. Einnig skal staðið vörð um hagsmuni tónlistarkvenna á Íslandi og styrkja grasrót ungra tónlistarstúlkna. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að vakta kynjahlutfall í stjórnum og nefndum hinna ýmsu tónlistargreina og miðla er lúta að tónlist. Einnig með því að styrkja samstöðu meðal tónlistarkvenna og upplýsingaflæði þeirra á milli með samfélagsmiðlum á borð við Facebook. Hugmyndir eru uppi um að fulltrúar frá Félagi íslenskra kvenna í tónlist heimsæki skólastelpur í grunnskólum landsins og ræði við þær um tónlistarlífið og hvetji þær til að taka sér hljóðfæri í hönd. - fb
Tónlist Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót Menning „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira