Körfubolti

Fyrrum KR-ingur til Ísafjarðar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brown í leik með KR árið 2012.
Brown í leik með KR árið 2012. Mynd/Daníel
KFÍ hefur fundið eftirmann Jason Smith en Bandaríkjamaðurinn Joshua Brown mun leika með liðinu til loka tímabilsins.

Brown lék með KR á síðara hluta tímabilsins 2011-12, alls nítján leiki. Hann skoraði að meðaltali 20,1 stig, tók 5,4 fráköst og gaf 4,8 stoðsendingar.

Brown er leikstjórnandi sem lék síðast í efstu deild í Kosovo þar sem hann var með svipaða tölfræði og hjá KR á sínum tíma.

Smith var leystur undan samningi sínum við KFÍ um miðjan mánuðinn eftir að hann fékk tilboð frá Brasilíu um að leika með þarlendu liði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×