Körfubolti

Aldrei séns gegn Barcelona

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fyrirliðarnir hjá CAI Zaragoza.
Fyrirliðarnir hjá CAI Zaragoza. Mynd/Heimasíða CAI Zaragoza
Jón Arnór Stefánsson spilaði í tæpar 19 mínútur og skoraði tvö stig í 73-50 tapi CAI Zaragoza gegn Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Gestirnir voru 15 stigum undir í hálfleik 40-25 og Börsungar bættu aðeins við forskotið í síðari hálfleiknum. Ante Tomic fór á kostum hjá Börsungum emð 17 stig og 13 fráköst.

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér.

Jón Arnór og félagar eru í 7. sæti deildarinnar með fjóra sigra úr átta leikjum. Börsungar eru í 4. sæti með sex sigra og tvö töp.

Þá skoraði Hörður Axel Vilhjálmsson tvö stig fyrir botnlið CB Valladolid gegn Bilbao Basket í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×