Körfubolti

Helena hitti úr öllum þriggja stiga skotum sínum í Evrópusigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Daníel
Helena Sverrisdóttir átti flottan leik þegar lið hennar Aluinvent Miskolc frá Ungverjalandi vann 19 stiga útisigur á belgíska liðinu Lotto Young Cats í Eurocup-keppninni í kvöld, 80-61. Leikurinn fór fram í Sint-Katelijne-Waver í norður Belgíu.

Miskolc-liðið hefur þar með unnið 3 af fyrstu fimm leikjum sínum í riðlinum og er á góðri leið með að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum keppninnar. Liðið mætir þýska liðinu TSV Wasserburg í lokaumferðinni og sigurvegari þess leiks fer áfram.

Helena var með 16 stig, 3 stoðsendingar og 2 fráköst á 27 mínútum í kvöld en hún hitti meðal annars úr öllum þremur þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

Helena var næststigahæsti leikmaður síns liðs en bandaríski bakvörðurinn Brittainey Raven var með 18 stig. Lettinn Liene Jansone skoraði 15 stig.

Miskolc gaf tóninn strax í byrjun, vann fyrsta leikhlutann 29-18 og var síðan komið með 21 stigs forskot fyrir lokaleikhlutann, 64-43. Sigurinn var því aldrei í hættu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×