Fótbolti

Landsliðsmennirnir bjóða krökkum og stuðningsmönnum í heimsókn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Strákarnir okkar æfðu á Kópavogsvelli í dag.
Strákarnir okkar æfðu á Kópavogsvelli í dag. Mynd/Vilhelm
Leikmenn karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu ætla að árita veggspjöld á morgun fyrir stuðningsmenn sína.

Strákarnir okkar mæta Króötum á föstudaginn í fyrri leik liðanna um laust sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu næsta sumar.

Landsliðsmennirnir verða í anddyri íþróttahússins Kórsins í Kópavogi frá klukkan 17:00 til 17:30. Knattspyrnusamband Íslands býður alla velkomna í Kórinn til að hitta strákana og fá eiginhandaráritun leikmanna. Vegna æfinga liðsins verður aðeins um þennan tíma að ræða.

Veggspjaldið sem strákarnir munu árita.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×