Körfubolti

Jón Arnór klikkaðu ekki úr skoti í stórsigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson átti góðan leik fyrir CAI Zaragoza sem rúllaði yfri Bruixa d´Or 89-52 í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Jón Arnór hitti úr öllum skotum sínum í leiknum.

CAI Zaragoza átti aldrei í vandræðum og gat hvílt byrjunarlið sitt er leið á leikinn. Jón Arnór lék í 15 og hálfa mínútu og skoraði á þeim tíma 13 stig.

Jón Arnór hitti úr öllum þremur tveggja stiga skotum sínum, báðum þriggja stiga skotum sínum auk þess að taka tvö fráköst og gefa eina stoðsendingu.

Giorgi Shermadini var stigahæstur Zaragoza með 22 stig og Pedro Llompart skoraði 14. Liðið hefur farið vel af stað í spænsku deildinni og unnið þrjá af fjórum leikjum sínum en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×