Fótbolti

Ísland 1 - Króatía 7

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hermann Hreiðarsson í síðasta landsleik á móti Króatíu árið 2005.
Hermann Hreiðarsson í síðasta landsleik á móti Króatíu árið 2005. Mynd/AFP
Karlalandslið Íslands og Krótatíu hafa mæst tvisvar sinnum á knattspyrnuvellinum og Króatar unnu báða leikina sannfærandi. Markatalan er 7-1 Króatíu í vil.

Leikirnir voru í undankeppni HM 2006 þar sem Króatía vann riðil Íslands en þetta er einmitt síðasta heimsmeistaramót þar sem Króatar voru meðal þátttökuliða.

Krótatía vann fyrri leikinn 4-0 á heimavelli 26. maí 2005 og vann síðan seinni leikinn 3-1 á Laugardalsvellinum en hann fór fram 3. september 2005.

Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eina mark Íslands en hann kom íslenska liðinu í 1-0 í Laugardalnum en Króatía tryggði sér sigurinn með þremur mörkum í seinni hálfleiknum.

Eiður Smári er eini leikmaður liðsins í dag sem tók þátt í síðasta leik á móti Króatíu en Kári Árnason var á bekknum.

Þjálfarar Íslands í leikjunum tveimur fyrir rúmum átta árum voru þeir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×