Íslenski boltinn

Ingó Veðurguð ráðinn þjálfari Hamars

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingólfur Þórarinsson í leik með Selfyssingum
Ingólfur Þórarinsson í leik með Selfyssingum mynd / arnþór
Knattspyrnumaðurinn Ingólfur Þórarinsson hefur verið ráðinn þjálfari Hamars og mun hann verða spilandi þjálfari hjá liðinu í 3. deildinni á næsta tímabili. Þetta staðfesti Ingólfur í samtali við vefsíðuna 433.is í dag.

Hamar féll úr 2. deildinni í sumar en Kristmar Geir Björnsson var þjálfari liðsins í sumar.

Ingólfur er aðeins 27 ára og hefur leikið með Selfossi, Víkingi R. og Fram á sínum ferli. Ingólfur lék með Selfyssingum í sumar og gerði fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×