Gylfi hvíldur í fimmta Evrópusigri Tottenham í röð Óskar Ófeiguf Jónsson skrifar 24. október 2013 16:30 Mynd/AFP
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham eru með fullt hús og fimm stiga forystu í K-riðli Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á Sheriff Tiraspol í Moldavíu í kvöld. Tottenham er búið að vinna þrjá fyrstu leiki sína í riðlakeppninni og vann einnig báða leiki sína í forkeppninni. Markatala Tottenham-liðsins í þessum fimm leikjum er 15-0. Gylfi Þór Sigurðsson sat allan tímann á bekknum í kvöld og knattspyrnustjórinn André Villas-Boas ákvað að hvíla íslenska landsliðsmanninn enda er búið að vera nóg að gera hjá Gylfa að undanförnu. Jan Vertonghen kom Tottenham í 1-0 strax á 12. mínútu leiksins þegar hann skoraði með skalla eftir stutt horn og fyrirgjöf Danans Christian Eriksen. Jermain Defoe skoraði seinna markið á 75. mínútu með skoti fyrir utan teig sem fór af varnarmanni og yfir markvörð Tiraspol. Tottenham átti möguleika að tryggja sér sæti í 32 liða úrslitunum væru úrslitin þeim hagstæð í hinum leik riðilsins en þar sem að Anzhi Makhachkala vann þá 1-0 sigur á Tromsö þurfa Tottenham-menn að bíða aðeins með að gulltryggja sér farseðilinn í útsláttarkeppnina.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Fleiri fréttir Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Sjá meira