Fótbolti

Jafntefli í Slóveníu í kvöld eru bestu úrslitin fyrir Ísland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck er örugglega með allt á hreinu hvað varðar stöðuna í riðlinum.
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck er örugglega með allt á hreinu hvað varðar stöðuna í riðlinum. Mynd/Pjetur
Næstsíðasta umferðin í riðli Íslands í undankeppni HM í Brasilíu 2014 fer fram í kvöld og eru öll sex liðin í riðli Íslands í eldlínunni. Ísland mætir botnliði Kýpur á Laugardalsvellinum klukkan 18.45 en stóra spurningin er nú hver séu hagstæðustu úrslitin fyrir Ísland í hinum tveimur leikjum riðilsins.

Ísland á enn möguleika á því að vinna riðilinn þótt að sá möguleiki sé svolítið langsóttur. Ísland er fimm stigum á eftir toppliði Sviss en Svisslendingar tryggja sig á HM með því að ná í tvö stig í síðustu tveimur leikjum sínum sem eru á móti Albaníu (á útivelli í kvöld) og á móti Slóveníu (á heimavelli á þriðjudaginn).

Vinni Sviss í Albaníu í kvöld þá eru Svisslendingar komnir á HM auk þess að möguleikar Albana væru úr sögunni. Það er því kannski best að fækka um eina þjóð í baráttunni um umspilssætið fyrst að möguleikarnir á efsta sætinu eru hvort sem er svo litlir. Sigur Albana þýddi að þeir væru komnir inn í myndina enda ættu þeir leik eftir á móti botnliði Kýpur.

Augu íslenskra knattspyrnuáhugamanna verða hinsvegar á leik Slóveníu og Noregs í Maribor í Slóveníu. Slóvenar eru stigi á eftir Íslandi og einu stigi á undan Noregi. Báðar þjóðir þurfa að leika til sigurs því þær búast væntanlega við því að Íslendingar vinni á sama tíma botnlið Kýpur.

Markatala þessara þriggja þjóða er nánast jöfn, Slóvenar eru í plús einum en Ísland og Norðmann standa á sléttu. Ísland bætir vonandi markatölu sína með sigri á Kýpur.

Bestu úrslitin fyrir Ísland eru væntanlega jafntefli. Vinni Ísland Kýpur á sama tíma þá væru Norðmenn úr leik með þeim úrslitum og Slóvenar þurftu að vinna topplið Sviss á útivelli í lokaumferðinni á sama tíma og Ísland tapaði í Osló.

Fari svo að Ísland og Sviss vinni leiki sína í kvöld á sama tíma og Slóvenía og Noregur gera jafntefli þá væri staðan frábær fyrir Ísland. Sviss væri þá komið á HM en Ísland vantaði aðeins eitt stig til að gulltryggja annað sætið og tapist leikurinn í Osló þyrftu Slóvenar að vinna Sviss til að komast upp fyrir Ísland.

Leikir kvöldsins:

Ísland - Kýpur

Albanía - Sviss

Slóvenía - Noregur

Möguleg staða fyrir lokaumferðina eftir nokkrum mismundandi úrslitum í kvöld:

Sviss og Ísland vinna í kvöld en jafntefli í Slóveníu

Sviss 21 stig (Komið á HM)

Ísland 16

Slóvenía 13

Noregur 12 (Úr leik)

Albanía 10 (Úr leik)

Kýpur 4 (Úr leik)

Sviss, Ísland og Slóvenía vinna í kvöld

Sviss 21 stig (Komið á HM)

Ísland 16

Slóvenía 15

Noregur 11 (Úr leik)

Albanía 10 (Úr leik)

Kýpur 4 (Úr leik)

Albanía, Kýpur og Noregur vinna í kvöld

Sviss 18 stig (Komið á HM)

Noregur 14

Ísland 13

Albanía 13

Slóvenía 12

Kýpur 7 (Úr leik)

Sviss, Kýpur og Noregur vinna í kvöld

Sviss 21 stig (Komið á HM)

Noregur 14

Ísland 13

Slóvenía 12

Albanía 10 (Úr leik)

Kýpur 7 (Úr leik)

Albanía, Ísland og Slóvenía vinna í kvöld

Sviss 18 stig

Ísland 16

Slóvenía 15

Noregur 11

Albanía 13

Kýpur 4 (Úr leik)

Albanía, Ísland vinna í kvöld en jafntefli í Slóveníu

Sviss 18 stig

Ísland 16

Slóvenía 13

Noregur 12

Albanía 13

Kýpur 4 (Úr leik)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×