Körfubolti

Slóvenar áfram | Línur teknar að skýrast

Eyþór Atli Einarsson skrifar
Goran Dragic sáttur að leik loknum
Goran Dragic sáttur að leik loknum Nordicphotos/AFP
Slóvenía sigraði Grikkland í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik í gær 73-65. Slóvenar bættust í hóp Króatíu, Litháen, Serbíu og Frakklands sem öll höfðu tryggt sig í átta liða úrslitin.

Slóveninn Goran Dragic, sem leikur með Phoenix Suns í NBA-deildinni, fór fyrir sínum mönnum og skoraði 28 stig. Hjá Grikkjum var Vassilis Spanoulis, leikmaður Olympiacos atkvæðamestur og skoraði 21 stig auk þess að taka átta fráköst.

Síðustu leikir riðlakeppninnar eru í dag og á morgun og kemur þá í ljós hverjir hreppa síðustu þrjú sætin. Átta liða úrslitin hefjast á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×