Íslenski boltinn

Þorlákur tekur ekki við kvennalandsliðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórlákur Árnason
Þórlákur Árnason Mynd / Ernir
Þorlákur Árnason tekur ekki við íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu en Þorlákur er í dag þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar sem er í langefsta sæti Pepsi-deildarinnar.

Þetta staðfesti þjálfarinn í samtali við íþróttadeild RÚV í dag.

KSÍ hafði samband við Þorlák en hann sá sér ekki fært að taka við liðinu og því fóru aldrei fram neinar viðræður.

Eins og staðan er í dag eru þau Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstads í Svíþjóð, og Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Leiknis, líklegust til að taka við liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×