Íslenski boltinn

Katrín: Sorglegt að fylgjast með ósanngjarnri umræðu

Katrín Jónsdóttir.
Katrín Jónsdóttir. Mynd/ÓskarÓ
Katrín Jónsdóttir, fráfarandi fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur stigið fram og tjáð sig um þá umræðu sem hefur verið í gangi um kvennalandsliðið eftir að fjórir leikmenn ákváðu að senda landsliðsþjálfaranum Sigurði Ragnari Eyjólfssyni bréf og greina honum frá óánægju sinni.

Katrín skrifar um málið inn á fésbókarsíðu sinni í kvöld en þar segir hún að það sé sorglegt að fylgjast með umræðunni sem hefur verið um íslenska landsliðið að undanförnu. Sport.is birti fyrst pistil Katrínar á heimasíðu sinni.

Pistill Katrínar Jónsóttur í kvöld:

„Það hefur verið sorglegt að fylgjast með ósanngjarnri umræðu í tengslum við þjálfaramál íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu upp á síðkastið. Umræðan hefur um margt verið ómálefnaleg og með þann eina tilgang að sverta mannorð nafngreindra leikmanna landsliðsins að ósekju. Slíkar dylgjur gera ekki bara lítið úr jákvæðu starfi og umfangsmikilli uppbyggingu til fjölda ára, heldur hafa þær undantekningarlítið verið kolrangar.

Fimm leikmenn kvennalandsliðsins hafa nú sætt óvæginni gagnrýni sem á alls engan rétt á sér. Edda, Katrín, Ólína, Sif og Þóra hafa verið liðsfélagar mínir í félagsliðum og landsliði til fjölda ára. Þær eru allar frábærar íþróttakonur og miklar fyrirmyndir, sem hafa gefið bókstaflega allt í þau verkefni sem lögð hafa verið fyrir þær. Ég hef verið stolt af því að klæðast íslenska landsliðsbúningnum með þeim og þær eru stór hluti af framtíð liðsins.

Ég vona innilega að sár mun gróa og að miskunnarlaus umræðan upp á síðkastið skyggi ekki á hið magnaða starf og árangur, sem hefur náðst með samhentu átaki margra góðra þjálfara, öflugs baklands KSÍ, ómetanlegs stuðningsfólks og umfram allt frábærra leikmanna. Áfram Ísland og sjáumst í næsta leik, í stúkunni."


Tengdar fréttir

Landsliðskonurnar fjórar sem skrifuðu bréfið

Landsliðskonurnar Katrín Ómarsdóttir, Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Sif Atladóttir og Þóra Björg Helgadóttir sendu Sigurði Ragnari Eyjólfssyni tölvupóst á dögunum. Þær töldu trúnaðarbrest hafa orðið á milli sín og þjálfarans og voru ósáttar með orð hans í fjölmiðlum.

Þorlákur tekur ekki við kvennalandsliðinu

Þorlákur Árnason tekur ekki við íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu en Þorlákur er í dag þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar sem er í langefsta sæti Pepsi-deildarinnar.

Þórir sagði að þær ósáttu skildu hafa beint samband við sig

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segist hafa fengið símtal frá leikmanni kvennalandsliðsins að loknu Evrópumótinu í Svíþjóð. Sá sagði nokkra leikmenn liðsins mjög ósátta að Sigurði Ragnari hefði verið boðið starfið að nýju.

Yfirlýsing frá Eddu Garðarsdóttur

Undanfarna viku hefur verið fjallað mikið um samskipti landsliðsmanna kvennalandsliðsins við fráfarandi þjálfara Íslands Sigurð Ragnar Eyjólfsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×