Tæklingar Pálu Marie og glæsimörk Stjörnunnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2013 11:50
Stjarnan tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 4-0 sigri á Val í Garðabæ. Dómgæslan í leiknum vakti athygli. Stjarnan skoraði tvö mörk, hvort í sínum hálfleiknum og vann afar sannfærandi sigur. Rúna Sif Stefánsdóttir, Danka Podovac, Harpa Þorsteinsdóttir og Írunn Þorbjörg Aradóttir skoruðu mörkin. Stjörnukonur voru allt annað en sáttar með frammistöðu Gunnars Sverris Gunnarssonar í leiknum. Beindist óánægjan að þremur tæklingum Pálu Marie Einarsdóttur, miðvarðar Valskvenna. Harpa Þorsteinsdóttir fékk í tvígang að finna fyrir því eftir tæklingar Pálu en versta brotið kom um miðjan síðari hálfleik þegar brotið var á Önnu Maríu Baldursdóttur. Í engu tilfellanna þriggja var dæmd aukaspyrna og sýnist vafalítið sitt hverjum. Óhætt er að fullyrða að einhverjir dómarar hefðu veitt Pálu áminningu í hverju tilfelli. Í spilaranum hér að ofan má sjá mörkin úr leiknum og tæklingar Pálu Marie. Brotin eiga sér stað eftir 36 sekúndur, 2:38 mínútur og sú þriðja strax í kjölfarið. Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, skipti Pálu Marie út af skömmu síðar. Þá fékk Madison Vandire, bandarískur leikmaður Vals, dæmda á sig vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Reif hún þá Hörpu Þorsteinsdóttur niður innan teigs en augljósari vítaspyrna verður varla dæmd í sumar.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira