Íslenski boltinn

Tryggvi Guðmundsson samdi við HK

Stefán Árni Pálsson skrifar
Knattspyrnumaðurinn Tryggvi Guðmundsson hefur skrifað undir samning við HK en leikmaðurinn hætti hjá Fylki á dögunum.

Tryggvi verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins í 2. deildinni í sumar en liðið er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig, þremur stigum á eftir KV og Aftureldingu sem verma tvö efstu sætin.

Tryggvi Guðmundsson er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar karla í knattspyrnu  og ætti því að styrkja HK verulega í toppbaráttunni.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×