Íslenski boltinn

Leikmenn ÍBV brjálaðir á Twitter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikmenn ÍBV voru allt annað en sáttur við Magnús Þórisson, dómara , í leik Eyjamanna og KR í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

KR vann leikinn 3-0 en dómari leiksins rak tvo Eyjamenn útaf með rautt spjald í leiknum. Eyjamenn voru því tveimur færri um tíma.

David James, markvörður Eyjamanna, og Bradley Simmonds, leikmaður ÍBV, helltu sér yfir íslenska dómara á samskiptamiðlinum Twitter strax eftir leik.

David James vildi meina að Eyjamenn hefði verið 10 gegn 12 stóran hluta af leiknum og Simmonds auglýsti eftir enskum dómurum til þess að koma til Íslands og leysa menn af hér á landi.

Hér að neðan má sjá tístin frá leikmönnunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×