Íslenski boltinn

Dómarar á ferð og flugi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorvaldur Árnason.
Þorvaldur Árnason. Mynd/Vilhelm

Knattspyrnudómararnir Gunnar Jarl Jónsson og Þorvaldur Árnason verða í eldlínunni utan landsteinanna í vikunni.

Gunnar Jarl dæmir vináttulandsleik 21 árs liða Noregs og Finnlands í Hönesfoss á morgun en Þorvaldur verður í Tallinn á föstudaginn. Þá fer fram leikur Eistlands og Danmerkur í undankeppni EM U21 árs landsliða karla.

Áskell Þór Gíslason og Gylfi Þór Sigurðsson verða Þorvaldi til halds og trausts á hliðarlínunum. Fjóri dómari verður Þóroddur Hjaltalín.

Þá mun Jóhann Gunnar Guðmundsson að störfum frá og með morgundeginum á EM U21 karal í Ísrael. Jóhann Gunnar verður fjórði dómari á opnunarleik keppninnar á morgun þegar heimamenn mæta Norðmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×