Löng og leiðinleg bið eftir alvöru leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2013 15:15 Pálína í leik með Keflavík. Mynd/HAG
Úrslitakeppni Domino's-deildar kvenna hefst í kvöld en hún hefst nú strax í undanúrslitum. Deildarmeistarar Keflavíkur mæta Val í sinni rimmu en þessi lið hafa átt athyglisverða leiki í vetur. Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Keflavíkur, hefur engar áhyggjur af vanmati í sínu liði. „Ég hef engar áhyggjur af værukærð. Valur hefur sýnt okkur í vetur að þetta er gott lið. Það hefur unnið okkur tvisvar en við þær þrisvar. Þetta eru bara tvö góð lið sem eru að mætast," sagði Pálína. „Við þurfum fyrst og fremst að spila góða vörn til að vinna þessa rimmu, enda hef ég alltaf sagt að vörn vinni titla. Ég held að við þurfum fyrst og fremst að verja okkar körfu og passa að þær skori minna en við." Keflavík var búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn fyrir nokkru síðan og verður því leikurinn í kvöld sá fyrsti í langan tíma sem skiptir verulegu máli. „Þetta hefur verið leiðinleg bið. Síðustu fjórir leikirnir okkar voru eins og æfingar fyrir okkur. Yngri leikmenn fengu að spila og Siggi þjálfara var að skoða ýmsa hluti." „Ég er samt ánægð með fyrirkomulagið í deildinni enda spilum við núna fleiri leiki en áður. Þetta hefði getað verið spennandi allt fram í lokaumferð en þannig spilaðist deildin ekki í þetta skiptið." Hún hefur ekki áhyggjur af sínu liði fyrir leik kvöldsins. „Við höfum æft stíft og við höfum verið á uppleið." Snæfell og KR eigast við í hinni rimmunni en fyrstu leikirnir í báðum rimmum hefjast klukkan 19.15 í kvöld.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira