Stjörnumenn í oddaleik fimmta árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2013 09:30 Justin Shouse er að fara spila sinn sjötta oddaleik í átta liða úrslitum á ferlinum. Mynd/Valli
Það hefur verið mikil spenna í einvígum Stjörnumanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni karla í körfubolta undanfarin ár og það breytist ekki í ár. Keflavík jafnaði einvígið á móti Stjörnunni í gærkvöldi og liðin mætast því oddaleik í Garðabænum á fimmtudagsvöldið. Þetta er fimmta árið í röð þar sem strákarnir hans Teits Örlygsson fara í leik upp á líf eða dauða í átta liða úrslitunum en þeir hafa fagnað sigri í slíkum leik undanfarin tvö ár. Stjarnan og Keflavík munu því mætast annað árið í röð í oddaleik í átta liða úrslitum en í fyrra unnu Stjörnumenn eftir framlengdan leik. Justin Shouse, Fannar Freyr Helgason og Jovan Zdravevski hafa verið með í öllum þessum fjórum oddaleikjum en Jovan verður væntanlega ekki með á fimmtudaginn eftir að hafa fengið brottrekstrarvillu í Keflavík í gær. Sigurður Ingimundarson og Magnús Þór Gunnarsson, núverandi þjálfari og fyrirliði Keflavíkur, voru báðir með Njarðvíkurliðinu sem sló út Stjörnuna í oddaleik í Garðabænum í átta liða úrslitum 2010. Keflavíkurliðið er í þessari stöðu þriðja árið í röð og hafa farið í framlengingu í oddaleik undanfarin tvö ár. Þeir töpuðu eins og áður sagði fyrir Stjörnunni í framlengingu í fyrra en unnu ÍR-inga eftir framlengingu 2011. Keflavík vann síðan Tindastól örugglega í oddaleik í átta liða úrslitum 2010.Oddaleikir Stjörnunnar í 8 liða úrslitum 2009-2012 2009: Snæfell 73-71 Stjarnan 2010: Stjarnan 72-88 Njarðvík 2011: Grindavík 66-69 Stjarnan 2012: Stjarnan 94-87 (77-77) Keflavík 2013: Stjarnan - Keflavík (á fimmtudaginn)
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira