Körfubolti

Jón Arnór og félagar töpuðu fyrir Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd / Anton
Barcelona vann fínan sigur, 89-81, á Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en Jón Arnór Stefánsson leikur með Zaragoza.

Jafnræði var á með liðunum til að byrja með og var leikurinn í raun alltaf opin.

Jón Arnór Stefánsson átti ágætan leik og skoraði sjö stig en hann lék í tæplega tuttugu mínútur í leiknum.

Juan Carlos Navarro, leikmaður Barcelona, var frábær í dag og skoraði 28 stig.

Barcelona er í þriðja sæti deildarinnar en Zaragoza er í því sjöunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×