Stólarnir skríða upp töfluna - unnu Snæfell í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2013 21:14 Helgi Rafn Viggósson. Mynd/ÓskarÓ
Tindastóll vann mikilvægan tveggja stiga sigur á Snæfelli, 81-79 í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld en sigurinn losar liðið ekki bara við mesta falldrauginn heldur kom liðinu fyrir alvöru inn í baráttuna um síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Snæfellingar áttu möguleika á að komast upp að hlið Grindvíkinga á toppnum með sigri og voru í fínum málum í fyrri hálfleik en slæmir leikkaflar í seinni hálfleik urðu liðinu að falli. Helgi Rafn Viggósson, fyrirliði Tindastóls, var flottur í kvöld en hann skoraði 23 stig og var stigahæsti leikmaður liðsins. Jay Threatt var með 30 stig fyrir Snæfell en það dugði ekki til. Tindastóll var 21-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann en góður annar leikhluti skilaði Snæfellsliðinu sjö stiga forskot í hálfleik, 46-39. Það tók Stólana aðeins átta mínútur að komast fjórum stigum yfir í þriðja leikhlutanum en Tindastóll var 61-59 yfir fyrir lokaleikhlutann. Snæfell var 65-63 yfir þegar sjö mínútur voru eftir en Tindastólsmenn unnu næstu fimm mínútur 15-6 og komust í 78-71. Snæfell náði að minnka muninn í eitt stig, 80-79, en Stólarnir héldu úr og unnu sinni þriðja heimasigur í röð.Tindastóll-Snæfell 81-79 (21-19, 18-27, 22-13, 20-20)Tindastóll: Helgi Rafn Viggósson 23/6 fráköst, Tarick Johnson 21, George Valentine 12/11 fráköst, Drew Gibson 8/6 stoðsendingar, Helgi Freyr Margeirsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson 5, Svavar Atli Birgisson 5, Þröstur Leó Jóhannsson 2/4 fráköst.Snæfell: Jay Threatt 30/4 fráköst/5 stoðsendingar, Ryan Amaroso 16/16 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 10, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 8/5 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 8, Sveinn Arnar Davíðsson 4/4 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 2, Ólafur Torfason 1/5 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira