Fótbolti

Beckham verður ekki með PSG í Meistaradeildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Nordic Photos/Getty
David Beckham spilar ekki sinn fyrsta leik með franska liðinu Paris St-Germain þegar liðið mætir Valencia á morgun í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

David Beckham ferðast með PSG-liðinu til Spánar en er ekki í leikmannahópnum. Franska liðið verður einnig án Thiago Silva og Thiago Motta sem eru báðir meiddir.

Beckham gerði fimm mánaða samning við PSG á dögunum en hefur enn ekki spilað með liðinu. Hann á meira að segja enn eftir að æfa með liðinu en enski miðjumaðurinn hefur tekið sinn tíma að koma sínum málum á hreint.

Margir álíta kom Beckham til Parísar vera meira hugsað sem auglýsingu fyrir PSG heldur en eitthvað annað og það breytist lítið á meðan Beckham spilar ekki með liðinu.

Fyrstu leikir sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar fara fram á morgun fyrir utan leik Valencia og Paris St-Germain þá spila Celtic og Juventus í Glasgow.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×